Velkomin á vef Heilsuleikskólanna
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Saga heilsuleikskóla

Heilsuefling í skólum byrjaði 1994 sem samstarfsverkefni Heilbrigðisráðuneytisins og Landlæknisembættisins við skóla á öllum skólastigum. Evrópuverkefni heilsuskóla hófst 1999 og lauk 2002 og voru 4 skólar og Heilsugæslan í Kópavogi þátttakendur. Afrakstur Evrópuverkefnisins var viðmið fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla þar sem fram koma markmið heilsueflingar í skólum og þau grundvallarviðmið sem heilsuskólar eiga að starfa út frá.

Unnur Stefánsdóttir leikskólastjóri í Heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópavogi hafði frumkvæði að mótun heilsustefnu fyrir leikskóla. Markmið stefnunnar er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi. Kennarar Urðarhóls gáfu út Heilsubók barnsins og hönnuðu merki heilsuleikskólans. Fáni með heilsumerkinu er sú viðurkenning sem leikskólarnir fá afhentan ásamt viðurkenningarskjali, þegar þeir hafa uppfyllt þau skilyrði sem heilsuleikskóla ber að gera. Merki heilsuleikskólans táknar Heildin samofin þar sem barnið er í miðjunni umvafið áhersluþáttum heilsustefnunnar og leikskólaumhverfinu, sem vinna saman að því að þroska barnið.
Síðar tóku fleiri leikskólar upp heilsustefnuna og árið 2006 voru stofnuð Samtök heilsuleikskóla og sendu Sex leikskólar fulltrúa  á stofnfundinn og eru það fyrstu skólarnir sem fengu viðurkenningu. Fyrsti aðalfundur Samtakanna var haldinn í Kópavogi  17. mars 2006 og var Unnur Stefánsdóttir kosin fyrsti formaður þeirra. Fyrsta verkefni samtakanna var að endurskoða viðmið heilsuleikskóla sem voru samþykkt á fyrsta aðalfundi samtakanna. Næsta stóra verkefnið var að  halda ráðstefnu fyrir allt starfsfólk skólanna 10. október 2008 í Reykjanesbæ.  Efni ráðstefnunnar var  andleg og líkamleg vellíðun kennara í heilsuleikskólum.
Þetta starfsár er verið að endurskoða Heilsubók barnsins, viðmið fyrir heilsuleikskóla og að undirbúa heilsubrautina, sem er sú leið sem skólar fara sem eru að undirbúa sig fyrir heilsustefnuna. 

Alls hafa 11 leikskólar hlotið viðurkenningu sem Heilsuleikskólar.  Þeir eru eftirfarandi:

  • Urðahóll í Kópavogi árið 1996
  • Krókur í Grindavík 2003
  • Garðasel  á Akranesi 2004
  • Heiðarsel í Reykjanesbæ 2004
  • Suðurvellir í Vogum 2005
  • Árbær í Sveitarfélaginu Árborg 2007
  • Krógaból á Akureyri 2007
  • Krakkakot á Hornafirði 2008
  • Laufás við Þingeyri 2008
  • Kór í Kópavogi 2008
  • Fálkaborg í Reykjavík 2009
  • Bæjarból í Garðabæ 2010
  • Háaleiti í Reykjanesbæ 2010
  • Hamravellir í Hafnarfirði 2010
  • Brimver í Sveitarfélaginu Árborg 2010
  • Æskukot í Sveitarfélaginu Árborg 2010

Eftirtaldir skólar eru að undirbúa sig til þess að geta sótt um viðurkenningu sem heilsuskólar:
Kæribær  á Klaustri, Ársól í Reykjavík,  Ugluklettur í Borgarnesi, Andabær á Hvanneyri, Garðasel í Reykjanesbæ.