Stjórnarfundur Samtaka Heilsuleikskóla
Haldinn í Heilsuleikskólanum Urðarhóli Kópavogi föstudaginn 3. október kl. 11:00
Mættar voru: Sigrún Hulda Jónsdóttir, María Hermannsdóttir, Kristín Eiríksdóttir, Anna R. Árnadóttir og Ingunn Ríkharðsdóttir.
Dagskrá fundar:
- Skilgreining á Heilsustefnunni og Samtökum Heilsuleikskóla
Beiðni lá fyrir fundi frá Hákoni Sigurgrímssyni, eiginmanni Unnar, um hvernig þau sem eigendur Heilsustefnunnar, gætu komið að starfsemi Samtaka heilsuleikskóla, jafnvel hvort eigendur Heilsustefnunnar ( fjölskylda Unnar Stefánsdóttur) ættu að eiga aðila í stjórn samtakanna. Fundarmenn gáfu sér góðan tíma til að ræða þetta breytta landslag og þær skilgreiningar sem verða óhjákvæmilega samfara brotthvarfi Unnar. Helstu niðurstöður fundarins eru:
· Heilsustefnan er eign fjölskyldu Unnar Stefánsdóttur og hefur hún ákvörðunarvald um hverjir/hvernig mega nota stefnuna sem skilgreiningu á starfi sínu
· Samtök Heilsuleikskóla eru samtök þeirra leikskóla sem hafa fengið viðurkenningu sem heilsuleikskólar og leikskóla sem eru á heilsubraut. Umsóknir og meðferð þeirra, leiðsögn og úttektir ásamt viðurkenningu er á forræði Samtaka Heilsuleikskóla.
· Samtök Heilsuleikskóla eiga Heilsubók barnsins og Markmið og viðmið heilsuleikskóla
· Fundurinn áréttar að útfærsla Heilsustefnunnar. m.a. á önnur skólastig, er ekki á hendi Samtaka heilsuleikskóla, heldur á vegum eigenda Heilsustefnunnar.
· Greitt hefur verið til Samtaka Heilsuleikskóla minningargjafir um Unni Stefánsdóttur og leggur fundurinn til að rætt verði við fjölskyldu Unnar um að stofna sérstakan minningarsjóð , sem væri á forræði fjölskyldunnar og þeir peningar, sem lagðir hafa verið inn hjá Samtökunum, verði bakfærðir í þennan minningarsjóð. Sigrún mun ræða þessa tilhögun við fjölskylduna.
· Fundurinn ræddi um skilgreiningu á Skólum ehf. sem er rekstraraðili nokkurra leikskóla sem starfa undir merkjum Heilsustefnunnar. Niðurstaðan er að Skólar ehf. eru í sömu stöðu og bæjarfélög sbr. Akranes sem er rekstraraðili Garðasels, Kópavogsbær sem er rekstraraðili Urðarhóls.
· Aðilar í samtökunum geta verið þeir skólar sem fengið hafa formlega viðurkenningu sem heilsuleikskólar. Aukaaðild með málfrelsi og tillögurétti hafa þeir leikskólar sem eru á Heilsubraut. Umsóknir um aðild skulu afgreiddar á stjórnarfundi.
Félagsfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum á félagsfundi, nema annað sé sérstaklega tekið fram í samþykktum. Stjórn boðar til félagsfundar með tryggum hætti.
Rétt til setu á félagsfundum samtakanna hafa fulltrúar allra skóla sem greitt hafa félagsgjöld. Hver skóli skal tilnefna einn fulltrúa og einn til vara.
- Fyrirspurn frá leikskólanum Skógarlandi
Unnur var búin að skoða gögn frá leikskólanum Skógarlandi og til stóð að veita leikskólanum viðurkenningu 10. maí 2012. En nú hefur orðið breyting á starfsseminni þar sem eldhúsið hefur verið lagt niður í leikskólanum og til stendur að fá aðsendan mat frá grunnskólaeldhúsi.
Fyrirspurn barst til stjórnar frá Skógarlandi um að stjórnin skrifaði bréf um næringarþáttinn. Stjórnin bendir á að svipuð staða hefur komið upp áður hjá heilsuleikskóla/heilsuleikskólum og það er alfarið skólastjórnenda að beita sér í eldhúsmálum. Stjórnin hvetur leikskólastjóra Skógarlands að vinna náið með eldhússtarfsmönnum með það að markmiði að fylgja því eftir að unnið sé eftir Viðmiðum heilsuleikskóla.
- Heilsubók ungbarna
Sigrún Hulda Jónsdóttir greindi frá því að Heilsubók ungbarna fer nú senn að verða tilbúin. Bókin mun verða send út í leikskólana á rafrænu formi til umsagnar.
- Aðalfundur 2012
Aðalfundur Samtaka Heilsuleikskóla verður á Akureyri föstudaginn 16.mars. Dagskrá fundarins verður auglýst síðar, munið að taka daginn frá.
Fundi slitið kl. 14:30
Fundargerð ritaði María Hermannsdóttir
Stjórnarfundur Samtaka Heilsuleikskóla
Haldinn í Heilsuleikskólanum Urðarhóli Kópavogi fimmtudaginn 10. mars 2011 kl. 10:00.
Mættar voru: Unnur Stefánsdóttir, Anna R. Árnadóttir, María Hermannsdóttir, Kristín Eiríksdóttir, Ingunn Ríkharðsdóttir og Sigrún Hulda Jónsdóttir.
Dagskrá fundar:
- 10 daga námskeið í haust. Umræðu framhaldið vegna námskeiðshalds í haust. Unnur fór yfir stöðu mála, rakti ferlið frá því 11 stjórnendur fóru í kynnisferð til Ungverjalands og tilboð Katalinu Lakatosa forstöðumanns BHRG stofnunarinnar um að halda námskeið fyrir leikskólakennara/íþróttakennara/sérkennara í heilsuleikskólum. Ungverjalandsförum fannst spennandi að fá Katalinu hingað til lands og því var skipuð nefnd með það að markmiði að kanna þetta nánar. Jónína Lárusdóttir formaður undirbúningsnefndar kynnti stöðu mála á stjórnarfundi 14. febrúar sl. Eftirfarandi kom fram á þeim fundi:
- Áætlaður kostnaður: Miðað er við að námskeiðið kosti 3 milljónir miðað við að þátttakendur séu 25. Katalina getur komið í október 2011 og haldið 10 daga námskeið (bóklegt) í beinu framhaldi af ráðstefnu heilsuleikskóla. Seinni hluti námskeiðsins væri verklegur og kennt yrði í apríl 2012 í Ungverjalandi. Kennari sem sækir námskeiðið verður að klára allt námskeiðið til að fá réttindi, ef hann er fjarverandi vegna veikinda einn dag þá fær hann ekki réttindi.
- Þátttakendur greiða fyrir allt námskeiðið í október 2011 samtals 120.000 kr. Þá á eftir að greiða fargjaldið til Ungverjalands og gistingu.
- Kennarar sem hafa fengið réttindi til að nota aðferðina þurfa að endurnýja réttindi sín á þriggja ára fresti með því að fara á einsdags námskeið.
- Leikskólar sem vinna með aðferðina eru teknir út árlega. Krisztina mun halda einsdags námskeið og taka skólana út, en hún á eftir að afla sér réttinda til að svo geti orðið.
- Þeir skólar sem nota aðferð Katalinu greiða henni árgjald sem er 150 evrur.
- Allir sem vinna eftir þessari aðferð þurfa að eiga ákveðin tæki í sal og því má gera ráð fyrir kostnaði vegna þessa.
Stjórnin hefur kynnt sér málið í samvinnu við undirbúningsnefndina og telur námskeiðið ekki henta heilsuleikskólum. Ljóst er að skuldbinding er mikil og kostnaður mikill. Það er því ákvörðun stjórnar að taka ekki inn þetta námskeið.
- Ráðstefna heilsuleikskóla í haust. Anna R. Árnadóttir sagði frá stöðu mála í undirbúningsnefndinni. Fyrirhugað er að halda ráðstefnu næsta haust og verður það ekki tengt hinu 10 daga námskeiði sem áður var horft til. Dagsetning er ekki komin en á næstunni er ætlunin að senda út í skólana könnun með það í huga að kanna hvaða dagsetning hentar flestum, valið mun standa um tvær dagsetningar. Nefndin er nú að safna hugmyndum að fyrirlestrum og staðsetningu. Kynnt nánar á aðalfundi samtakanna í mars.
- Aðalfundur 31. mars. Aðalfundur Samtaka Heilsuleikskóla verður í Sveitarfélaginu Árborg fimmtudaginn 31. mars kl. 11:00-15:30. Fundurinn er opinn leikskólastjórum og aðstoðarleikskólastjórum í heilsuleikskólum og Leikskólum á Heilsubraut. Fundinn skipuleggur Kristín Eiríksdóttir, leikskólastjóri í leikskólanum Árbæ. Unnur og Kristín munu senda út dagskrá og þátttökulista. Ef óskir eru um lagabreytingar þurfa þær að berast til stjórnar 7 dögum fyrir aðalfund. Kosning nýrrar stjórnar mun fara fram á aðalfundi. Kosið er um formann og varaformann. Unnur Stefánsdóttir gefur kost á sér áfram sem formaður samtakanna og Sigrún Hulda Jónsdóttir sem varaformaður. Anna R. Árnadóttir og María Hermannsdóttir gefa kost á sér áfram, Anna sem gjaldkeri og María sem ritari. Ekki er kosið um þær stöður á þessum aðalfundi. Kosið er um meðstjórnanda og varamann. Kristín Eiríksdóttir er meðstjórnandi og Ingunn Ríkharðsdóttir varamaður. Kosið verður um fjórar stöður á fundinum og eru áhugasamir beðnir að gefa sig fram við formann samtakanna.
- Heilsubók barnsins. Það er ákvörðun stjórnar að stofnaður verði þróunarsjóður, þar sem innkoma af sölu Heilsubókar barnsins verði grunnurinn. Þegar skóli sækir um að vera Leikskóli á heilsubraut greiðir hann 30.000. kr. kostnað vegna heilsubókar barnsins. Heilsubók barnsins er eign Heilsustefnunnar og aðeins heilsuleikskólar og Leikskólar á heilsubraut hafa rétt á að nýta sér skráningarblöðin. Það er mat stjórnar að setja þarf ákvæði þar um í viðmið heilsuleikskóla. Tillaga mun verða lögð fram á aðalfundi um viðbótaupplýsingar í viðmið heilsuleikskóla.
- Heilsubók ungbarna. Sigrún Hulda fór yfir þær hugmyndir sem komnar eru hjá hópnum og hún mun kynnar þær nánar á aðalfundi. Stefnt er að útgáfu bókarinnar vorið 2012.
- Annað
Formaður þakkað stjórnarkonum samstarfið á starfsárinu. Fyrir alla vinnuna sem lögð hefur verið fram og áhugann á starfinu.
Ingunn sagði frá áhuga grunnskóla á Akranesi að gerast heilsuskóli.
María sagði frá umræðu um matarmál í grunnskólum í sunnudagsþætti með Sirrý og framhald þeirrar umræðu næsta sunnudag með innkomu skólanna í Vogum.
Fundi slitið kl. 12:15
Fundargerð ritaði María Hermannsdóttir
Stjórnarfundur Samtaka Heilsuleikskóla
Haldinn í ÍSÍ í Laugardalnum í Reykjavík föstudaginn 22. október 2010 kl. 11:45
Mættar voru: Unnur Stefánsdóttir, Sigrún Hulda Jónsdóttir, María Hermannsdóttir og Kristín Eiríksdóttir.
Dagskrá fundar:
1. Heilsuleikskólar vígðir
Æskukot á Stokkseyri og Brimver á Eyrarbakka voru vígðir sem heilsuleikskólar við hátíðlega athöfn 10. október síðastliðinn og Kæribær á Kirkjubæjarklaustri þann 19. október. Unnur Stefánsdóttir formaður flutti ávarp og færði skólunum viðurkenningarskjöl og fána með merki Samtakanna. Heilsuleikskólar eru nú 17 og skólar á Heilsubraut eru fimm.
2. Aðalfundur 2011
Aðalfundur Samtaka Heilsuleikskóla verður fimmtudaginn 3. mars í Árborg. Dagskrá fundarins verður auglýst síðar, en áætlað er að dagskráin hefjist kl. 16:00 og endi með sameiginlegum kvöldverði. Munið að taka daginn frá.
3. Fimm ára afmæli Samtaka Heilsuleikskóla
Samtök Heilsuleikskóla verða 5 ára þann 4. nóvember n.k. Í tilefni þess er leikskólastjórum og aðstoðarleikskólastjórum í heilsuleikskólum og leikskólum á Heilsubraut boðið í afmælishóf. Hver skóli má bjóða 1-2 gestum úr fræðslu- eða skólanefnd í sinni heimabyggð.
Afmælið verður haldið í Sal Kvenfélags Kópavogs að Hamraborg 10 í Kópavogi, annarri hæð.
Tilnefnd sem veislustjóri er Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri í Garðaseli Akranesi.
Á dagskrá er eftirfarandi:
. Unnur Stefánsdóttir formaður Samtaka Heilsuleikskóla flytur ávarp
. Sigrún Hulda Jónsdóttir varaformaður kynnir Heilsubók barnsins
. Hulda Jóhannsdóttir kynnir endurskoðuð viðmið heilsuleikskóla
. Nemendur frá Urðarhóli syngja nokkur lög
. Jónína Lárusdóttir segir frá námsferð til Ungverjalands
. Veitingar
Fundi slitið kl. 13:15
Fundargerð ritaði María Hermannsdóttir