Velkomin á vef Heilsuleikskólanna
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 
Aðalfundur Samtaka Heilsuleikskóla
haldinn á Hótel Selfoss í Sveitarfélaginu Árborg fimmtudaginn 31. mars 2011

Byrjað var á að fara í heimsókn í Heilsuleikskólann Árbæ. Kristín  Eiríksdóttir leikskólastjóri tók á móti gestum, fræddi þá um starf skólans og sýndi  þeim leikskólann sem er sex deilda. Eftir heimsóknina í leikskólann var haldið á Hótel Selfoss þar sem hádegisverður var snæddur.

Aðalfundur hófst kl. 12:45
Á fundinn mættu eftirtaldir fulltrúar heilsuleikskóla:
. Unnur Stefánsdóttir, Skólar ehf.
. Kolbrún Sigurðardóttir og Ólöf Kristín Guðmundsdóttir, Heiðarsel Reykjanesbæ
. Hulda Jóhannsdóttir og Bylgja Héðinsdóttir , Krókur Grindavík
. Sigrún Hulda Jónsdóttir, Lilja Kristjánsdóttir  og Ásdís Ólafsdóttir, Urðarhóll Kópavogi
. Ingunn Ríkharðsdóttir og Ingunn Sveinsdóttir , Garðasel Akranesi
. María Hermannsdóttir og Oddný Þóra Baldvinsdóttir, Suðurvellir Vogum
. Anna R Árnadóttir og Jórunn Jóhannesdóttir, Krógaból Akureyri
. Kristín Eiríksdóttir og  Sigríður  Pálsdóttir, Árbær Selfossi
. Bjarney Hlöðversdóttir og Ragnheiður Anna Haraldsdóttir, Kór Kópavogi
. Þórunn Júlíusdóttir, Kæribær Klaustri
. Ragnheiður Gunnarsdóttir og Iða Brá Gísladóttir, Hamravellir Hafnarfirði
. Kristín Sigurbergsdóttir og Rósa Arnardóttir,  Bæjarból Garðabæ
. Þóra Sigrún Hjaltadóttir , Háaleiti Vallarheiði, Reykjanesbær
. Ísrún Albertsdóttir, Æskukoti Stokkseyri, Árborg
      Sigríður Jakobsdóttir, Brimver Eyrarbakka

 Á fundinum sátu einnig eftirtaldir fulltrúar Leikskóla á Heilsubraut.

. Halldóra Guðmundsdóttir, Ungbarnaleiksólinn Ársól í Reykjavík
. Ragnhildur Skúladóttir og Ólöf Óskarsdóttir, Holtakot  Álftanesi
. Kristín Gísladóttir, Ugluklettur  Borgarbyggð
. Valdís Magnúsdóttir og Áslaug Ella Gísladóttir, Andabær Borgarbyggð
. Sigrún Hermannsdóttir og Sigríður Gréta Þorsteind. Álfasteinn Hörgárbyggð
. Hanna Málfríður Harðardóttir, Skógarland Egilsstöðum

Fundarstjóri var Kristín Eiríksdóttir og ritari María Hermannsdóttir.

Dagskrá fundar :
1. Skýrsla stjórnar
2. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga samtakanna
3. Umræður um skýrslu og reikninga
4. Lagabreytingar
5. Kosning formanns og varaformanns
6. Kosning meðstjórnenda og varamanna
7. Kosning tveggja skoðunarmanna
8. Önnur mál:
a. Heilsubók ungbarna
b. Námskeið í haust
c. Umsókn úr Forvarnarsjóði
 

Í upphafi fundar bauð Unnur Stefánsdóttir formaður samtakanna fundargesti velkomna á 6. aðalfund Samtaka Heilsuleikskóla, einnig skilaði hún kveðju frá leikskólunum Krakkakoti á Höfn, Laufási á Þingeyri, Garðasel í Reykjanesbæ  og  Fálkaborg í Reykjavík, en fulltrúar þeirra höfðu ekki tök á að mæta á fundinn.

1. Skýrsla Stjórnar:
Unnur Stefánsdóttir, formaður Samtakanna, gerði grein fyrir því helsta sem gerst hafði á árinu.

Fimm  stjórnarfundir voru haldnir á árinu í matstofu ÍSÍ í Reykjavík og Heilsuleikskólanum Urðahól í Kópavogi, einnig voru tölvusamskipti notuð. Verkefni stjórnarinnar s.l. starfsár hafa einkum verið Leikskólar á Heilsubraut, endurskoðun á Heilsubók barnsins, endurskoðun Viðmiða Heilsuleiksóla, Heilsubók ungbarna, fimm ára afmæli Samtakanna og námsferð til Ungverjalands.

Alls voru 6 leikskólar vígðir sem heilsuleikskólar árið 2010 og það er metár. Unnur bauð þá skóla velkomna og benti á að þeir hafi nú kosningarétt í Samtökunum.

Leikskólarnir sem fengu vígslu eru:
. 12.  maí, leikskólinn Bæjarból í Garðabæ
. 11. júní, leikskólinn Háaleiti í Reykjanesbæ
. 16. Júní, leikskólinn Hamravellir í Hafnarfirði
. 10. október, leikskólinn Brimver á Eyrarbakka
. 10. október, leikskólinn Æskukot á Stokkseyri
. 19. Október, leikskólinn Kæribær á Kirkjubæjarklaustri
 
Unnur Stefánsdóttir formaður Samtaka Heilsuleikskóla var viðstödd allar vígslurnar. Unnur flutti ávarp og afhenti skólunum viðurkenningarskjal og fána með merki heilsuskóla.

Í dag eru heilsuleikskólar á landinu 17 talsins og 7 leikskólar eru á Heilsubraut. Nokkrir leikskólar hafa verið með fyrirspurnir.
 
Á stjórnarfundi Samtakanna 4. nóvember 2008 var samþykkt að fela  fulltrúum frá fjórum fyrstu heilsuleikskólunum að  fara yfir Heilsubók barnsins. Þetta voru fulltrúar Urðarhóls, Króks, Garðasels og Heiðarsels. Á aðalfundi Samtakanna 2009 var svo Huldu Jóhannsdóttur leikskólastjóra á Króki Grindavík og Ingunni  Ríkharðsdóttur leikskólastjóra í Garðaseli á


Akranesi falið að endurskoða viðmið heilsustefnunnar. Þessari vinnu lauk á árinu og segja má að um uppskeruhátíð hafi verið  á 5 ára afmæli Samtakanna 4. nóvember 2010, en þá leit  3. útgáfa Heilsubókar barnsins dagsins ljós ásamt endurskoðuðum viðmiðum heilsustefnunnar.

Heilsubók barnsins nær til barna á aldrinum tveggja til sex ára. Einn ungbarnaleikskóli er komin á Heilsubraut og í ljósi þess var skipaður starfshópur sem hefur það hlutverk að vinna Heilsubók ungbarna. Þetta eru þær Sigrún Hulda Jóndóttir skólastjóri í Urðarhóli í Kópavogi, Berglind Grétarsdóttir skólastjóri í Ungbarnaleikskólanum Ársól í Reykjavík, Ólöf Kristín Sívertsen deildarstjóri í Ársól, Sigríður Pálsdóttir aðstoðarskólastjóri í Árbæ í Árborg og Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarskólastjóri á Suðurvöllum í Vogum.

Þann 4. nóvember 2010 voru Samtök Heilsuleikskóla fimm ára.  Að því tilefni var haldið afmælishóf í sal Kvenfélags Kópavogs í Kópavogi fimmtudaginn 4. nóvember 2010. Ingunn Ríkharðsdóttir skólastjóri í Garðaseli á Akranesi stjórnaði samkomunni.

Á aðalfundi Samtakanna árið 2009 vék formaður að því hvort stefna ætti að náms- og skemmtiferð til Ungverjalands. Vel var tekið í hugmyndina og ferðin varð að veruleika í ágúst 2010.  Upphaflega höfðu yfir 24 stjórnendur sýnt því áhuga að fara þessa ferð en það voru 11 sem fóru frá fimm leikskólum.

 Heimasíða Samtakanna var opnuð í nóvember 2009, en fyrirtækið Skólar ehf   hýsir síðuna.  Heimasíðustjóri er Sigríður Páldóttir aðstoðarskólastjóri í Árbæ  á Árborg.  Vefslóð heimasíðunnar er :

 Formaður og varaformaður heimsóttu Lýðheilsustöð með samstarf í huga.   Margrét Björnsdóttir forstjóri benti á að Samtök Heilsuleikskóla geta sótt um  styrk úr Forvarnarsjóði.

Að lokum þakkaði Unnur fundargestum þeirra framlag til heilsustefnunnar og þakkaði gott samstarf á liðnu ári.

Lesa má nánar um fyrrgreinda þætti í ársskýrslu Samtaka  Heilsuleikskóla 2010-2011.

2. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga samtakanna. Anna R. Árnadóttir lagði fram reikninga Samtakanna og gerði grein fyrir þeim. Staðan á reikningi 31. mars 2011 var 126.649 kr. Árgjald heilsuleikskóla til Samtakanna er 5.000 kr. fyrir skóla með 50 börn og færri, 10.000 kr. fyrir skóla með fleiri en 50 börn. 

 Stjórnin leggur til að árgjaldi verði breytt á þann hátt að skóli með 50 börn og  færri greiði 5.000 kr. skóli með 50 – 100 börn greiði 10.000 kr. skóli með 100 –  150 börn greiði 15.000 kr. og skóli með 150 -200 börn greiði 20.000 kr.



Skoðunarmenn eru Kolbrún Sigurðardóttir og Snæfríður H. Svavarsdóttir.

3. Umræður um skýrslu og reikninga. Hulda Jóhannsdóttir bar fram fyrirspurn um kostnað vegna innrömmunar á viðurkenningarskjölum. Unnur Stefánsdóttir útskýrði hvernig kostnaðurinn er til kominn.

Fundarstjóri bar skýrslu stjórnar og reikninga  undir atkvæði til samþykktar og samþykktin var einróma.

Einnig var tillagan um breytingu á árgjaldi samþykkt einróma.

4. Lagabreytingar. Liðurinn lagabreytingar féll niður þar sem engar tillögur bárust.
5. Kosning formanns og varaformanns. Tillaga um Unni Stefánsdóttur sem áframhaldandi formann og Sigrúnu Huldu Jónsdóttur varaformann samþykkt samhljóða.
6. Kosning gjaldkera og ritara. Kosning gjaldkera og ritara verður að ári, en þeim stöðum gegna því áfram Anna R. Árnadóttir gjaldkeri og María Hermannsdóttir ritari.
7. Kosning meðstjórnenda og varamanns. Tillaga var um Kristínu Eiríksdóttir sem meðstjórnanda og  Ingunni Ríkharðsdóttir sem varamann og það var samþykkt samhljóða. 
8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga. Tillaga, Kolbrún Sigurðardóttir og Snæfríður H. Svavarsdóttir, samþykkt samhljóða.

Unnur endurkosinn formaður tók til máls og þakkaði traustið.  Hún sagðist hafa mjög gaman af því að vinna framgang  mála sem Samtökin væru að beita sér fyrir.  Hún þakkaði stjórninni fyrir mjög gott samstarf og sagðist vera stolt af því hvað stjórnendur heilsuleiksóla væru virkir og áhugasamir í  starfi og það væri ánægjulegt að finna hversu áhuginn væri mikill hjá skólum að komast á Heilsubraut. Hún sagði jafnframt að það væri orðið tímabært að sækja um fjárstyrk til þess að við gætum sinnt ráðgjafa og eftirlitshlutverki.
9. Önnur mál:
Heilsubók ungbarna.
Sigrún Hulda Jónsdóttir greindi frá því starfi sem nefndin  hefur skilað í dag og vinnunni framundan. Tillaga er um að Heilsubók ungbarna verði nokkurskonar handbók, þ.e. að hún verði ekki hugsuð til útfyllingar, heldur til upplýsinga. Markmiðið er að ná fram því sem mikilvægt er að vinna með. Á næstunni mun nefndin vinna að því að setja bókina saman og því næst senda hana út í leikskólana til umsagnar, áætlað er að það verði í júní 2011.



Námskeið í haust.
Til stóð að halda ráðstefnu á sameiginlegum starfsdegi allra heilsuleikskóla haustið 2011. Hugmyndin var að fá Katalinu Lakatos hingað til lands, eins og greint hefur verið frá hefur verið fallið frá þeirri hugmynd.

Engu að síður er fyrirhugað að halda ráðstefnu heilsuleikskóla.
Í undirbúningsnefnd eru: Anna, leikskólastjóri  á Krógabóli Akureyri og jafnframt formaður hópsins, María, leikskólastjóri á Suðurvöllum og Kolbrún, leikskólastjóri í Heiðarseli.

 Anna R. Árnadóttir fór yfir vinnu nefndarinnar. Hugmyndir nefndarinnar eru  að ráðstefnan verði haldin á höfuðborgarsvæðinu t.d. að Gullhömrum í  Grafarholti. Fyrir hádegi  væru  2-4 fyrirlestrar, jafnvel 2 fyrirlestrar í  gangi í  einu, efnið  f.h. tengt  námsviðum leikskóla og jafnvel fengið frá  heilsuleikskólum.  Eftir hádegið væri einn sameiginlegur fyrirlestur sem snýr
            að kennaranum/starfsmanninum t.d. stjórnun streitu og álags, að stjórna  eigin  hugarfari og vellíðan, liðsheild og starfsánægja.

 Það er erfitt að finna dag sem hentar öllum þannig að nefndin mun tilnefna  tvo daga, valið mun standa um dags. að hausti 2011 - vor 2012. Anna mun senda út  fyrirspurn í leikskólana. Í framhaldi af  því verður tekin  ákvörðun um dag-  og tímasetningu.

Umsókn úr Forvarnarsjóði. Í mars auglýsti Lýðheilsustöð eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði, Unnur sá auglýsinguna og hefur verið að vinna umsókn með aðstoð Maríu, en hún sá um fjárhgsáætlunargerð. Stjórnin mun fara yfir umsóknina og Unnur senda hana inn með ósk um góða útkomu.

Ef um styrkveitingu verður að ræða er óákveðið hvernig styrknum verður ráðstafað nákvæmlega,  en áhugi er t.d. fyrir að koma á okkar eigin ráðgjafa- og eftirlitskerfi.
 
 Undir önnur mál tóku einnig til máls:
 Ingunn Ríkharðsdóttir bað um orðið og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn: Er  Heilsubók barnsins eingöngu fyrir heilsuleikskóla eða getur hver sem er  notað hana?

Samþykkt einróma að heilsubók barnsins er eingöngu ætluð fyrir heilsuleikskóla og Leikskóla á Heilsubraut.  Ingunn Ríkharðsdóttir og Hulda Jóhannsdóttir munu bæta þeim upplýsingum í viðmið heilsuleikskóla.

Sigrún Hulda velti fyrir sér hvernig bregðast eigi við þar sem nú þegar eru einhverjir skólar að nota bókina.




Ingunn Ríkharðsdóttir nefndi hvort hafa eigi samband við leikskólastjóra sem vitað er um að eru að nota Heilsubók barnsins og benda þeim á að bókin sé einungis ætluð heilsuleikskólum. Ingunn Sveinsdóttir nefndi hvort senda ætti ábendingu á alla leikskóla, Ásdís Ólafsdóttir velti fyrir sér hvað með þá sem hafa keypt bókina en ekki orðið heilsuleikskóli, Oddný Baldvinsdóttir nefndi traust, þ.e. hvort við verðum ekki bara að treysta skólastjórnendum til að nota ekki heilsubókina nema hafa keypt hana.

Hulda Jóhannsdóttir sammála um mikilvægi þess að setja uppl. í viðmið heilsuleikskóla um að heilsubók barnsins sé einungis ætluð heilsuleikskólum og Leikskólum á Heilsubraut.
 
 Næst tók til máls Unnur Stefánsdóttir: Unnur sagði frá hugmynd sinni og  löngun til að skrá heilsustefnuna hjá Einkaleyfisstofu. Eftir að hafa kynnt sér  málið er ljóst að ekki er hægt að skrá nafnið heilsustefnan, en  Unnur mun  skrá  merkið og hafa heilsustefnan skrifað undir merkinu.

 Því  næst tók til máls Sigrún Hulda en hún vildi koma á framfæri  ánægju  sinni með ákvörðun Unnar um að skrá merkið og segja mætti að með því   væri   unginn  kominn í hreiðrið sitt.

 Næst tók til máls Ásdís Ólafsdóttir: Ásdís er ósammála orðalagi í fundargerð,  þ.e.  að námskeiðið hennar Katalinu henti ekki heilsuleikskólum. Ásdís vildi   deila  hugsunum sínum með fundargestum. Ásdís  segir Katalinu vera að  vinna gott starf með börnum sem hentar vel heilsuleikskólum.

 Ingunn Ríkharðsdóttir tók til máls. Hún greiddi  Katalinu námskeiðinu     ekki fylgi á stjórnarfundi og ástæðan fyrir því er m.a. sú að  sérkennslumál  eru í góðum farvegi, skuldbinding er mikil og hún treystir sér  ekki til að  vera alltaf með menntaðan einstakling til að sinna verkefninu.  Ingunn  sagði, við erum að gera góða hluti.
 
Anna R. Árnadóttir, leikskólastjóri í Krógabóli á Akureyri, tók næst til máls og bauð alla fundarmenn velkomna til Akureyrar að ári á aðalfund Samtakanna.

Fundarstjóri las nokkur vel valin orð upp úr bók, þakkaði fyrir daginn og sleit fundi.


Fundi slitið kl. 15.00
                                                                 Fundargerð ritaði  María Hermannsdóttir