Uppskriftir frá Árbæ
Fiskbúðingur
5 kg. fiskhakk
6 stórir laukar
18 msk kartöflumjöl
18 msk hveiti
3 tsk pipar
3 tsk karrý
3 tsk paprikuduft
10 tsk salt
18 msk brætt smjörlíki
Mjólk eða vatn eftir þörfum
Heilsubrauð Evu
1 ½ bolli hveiti
1 ½ bolli heilhveiti
1 tsk matarsódi
1 tsk salt
5 dl súrmjólk
2 msk sýróp
1 bolli fræ t.d. sesam, hörfræ, og sólblóma ca. 3 msk. af hverju
Sýróp hrært saman við súrmjólkina, fræið sett út í, síðast þurrefnin.Sett í eitt formkökuform og bakað við 160¨C í 40 til 50 mín.
Lifrarbuff
1,1kg lifur
400 gr kartöflur
4 hótellaukar
1 ½ bolli heilhveiti
2 egg
2 msk salt
0,8 msk pipar
engifer
Orkuboltar
Kjötbollur
500 gr. Nautahakk
1 Egg
1 tsk. Oregano
½ tsk salt
1 dl haframjöl
Hrærið saman hráefninu í kjötbollurnar og mótið litlar bollur með teskeið.
Setjið bollurnar á bökunarplötu sem klædd hefur verið með bökunarpappír og steikið í u.þ.b. 10 mín við 180°C.
Kartöflur
1 kg kartöflur
2-3 msk matarolía
salt
pipar á hnífsoddi
rósmarín eftir smekk.
Afhýðið kartöflurnar og skerið í fallega báta
Blandið saman olíu, salti og pipar og hellið yfir kartöflurnar. Setjið kartöflurnar í vel smurt eldfast mót, stráið rósmarín yfir og bakið í ofni við 180°C í ½ tíma.
Agúrkusósa
2 dl AB mjólk eða súrmjólk
2 msk olía
2 hvítlauksrif
1 msk sítrónusafi
1 agúrka
¼ tsk salt
Pressið hvítlauksrifin. Hrærið súrmjólk/Abmjólk og olíu saman í skál, bætið hvítlauk, sítrónusafa og salti út i. Afhýðið agúrkuna, skerið í teninga og bætið í sósuna. Látið sósuna standa í 10 mín. áður en hún er borin fram.
Uppskriftir frá Krógabóli
Kryddbrauð
(þetta gamla góða, sleppa sykrinum, fitulaust og gott)
3 dl. hveiti
3 dl. haframjöl
3 dl. undanrenna (má vera minna því bananinn gefur vökva)
1 stappaður banani (var 1 dl sykur)
1-2 tsk natron
1 tsk negull
1 tsk engifer
1 tsk kanill
Öllu hrært saman og bakað í 1 klst. við
175° C Leikið ykkur með uppskriftina og
notið kókósmjöl í stað 1 dl af hveiti, jafnvel
bæta við hnetum.
Heilsubrauð
200 gr All bran
200 gr Spelt
200 gr Sigtað spelt
100 gr sólblómafræ
100 gr hrásykur
5 tsk lyftiduft
7,5 dl Sojamjólk eða ab- mjólk
Einnig má setja rúsínur í brauðið að vild
Allt sett saman í skál og hært, sett í brauðform og bakað við 175c í 1,5 klst (við bökuðum það í ca 30 mín enda erum við með gufuofn og er hann mjög fljótur að baka brauð)
Uppskrift frá Æskukoti:
Hrökkbrauð með kjörnum
1 dl. Haframjöl
1 dl. Hörfræ
1 dl. sesamfræ
1 dl. Graskersfræ
1 dl. sólblómafræ
3 ½ dl. Hveiti
1 tsk. Lyftiduft
2 1/2 tsk salt (má vera minna
2 dl. Vatn
1. dl. Olía
Þurrefnum blandað saman svo olíu og vatni.
Deiginu skipt í tvennt. Rúllað út á plötu
(bökunarpappir undir og yfir).
Skorið í bita.
Bakað við 170¨C í 30 mín í blástursofni